Um Sarepta
Leita
Norsk
English
Sólin
Reikistjarnan Mars
Jörðin séð frá gervihnetti
Veðuraðstæður í Noregi
Stormur á Vesturströnd Noregs nóvember 1998
Þörungar í hafinu
Olíumengun og skipaferðir - gervihnettir geta haft eftirlit
Þynnist ósonlagið?
Hvernig er fylgst með ósonlaginu?

Áhrif flugvallarbygginga í Gardemoen við Oslo á elgdýr
Eftirlit með breytingum á óshólma í norðurhluta stöðuvatnsins Øyern
Gervihnattamyndir
Tenglasafn
Orðalisti
Forrit
Ýmis verkefni
Ráðstefna
Greining veðurtunglamynda
Norska Veðurstofan (DNMI) tekur daglega á móti gervihnattamyndum frá gervihnöttum sem fara pólbraut og svæðisbundna braut.
 
Gervihnattamynd af Evrópu 21.06.01
Gervihnattamynd af Evrópu 21.06.01
Um borð í gervihnöttum eru tæki sem mæla bæði geislun frá jörðu og andrúmsloftinu en á mismunandi bylgjusviði. Starfsmenn veðurstofa nýta bæði myndir sem eru teknar á innrauða- og sýnilega bylgjusviðinu.

Þessar gervihnattamyndir gefa viðbótarupplýsingar um loftmassa, skil, hæðir og lægðir. Myndirnar eru mikilvægar óháð því hvaða landsvæði verið er að athuga. Mikilvægastar eru þær þó þar sem lítið er um veðurathugunarstöðvar og þá helst á hafsvæðunum.

Gervihnattamyndir og veðurfyrirbrigði
NOAA AVHRR mynd af óveðrinu sem skall á Vestur-Noreg nýársdag 1992 (TSS)
NOAA AVHRR mynd af óveðrinu sem skall á Vestur-Noreg nýársdag 1992 (TSS)
Gervihnattamyndir nýtast vel við að staðsetja veðurfyrirbrigði á smáum skala s.s. skúraský, meginskila-lægðir ofl. Þetta eru fyrirbrigði sem hafa litla lárétta útbreiðslu þannig að veðurstöðvanetið missir oft á tíðum af þeim.

Sérstaklega er það mikilvægt að fá góða yfirsýn yfir myndun lægða á meginskilunum, en þær geta skyndilega valdið auknum vindstyrk og bylgjuhæð samfara mikillri úrkomu. Þær myndast helst yfir vetrarmánuðina á hærri breiddargráðum og geta verið hættulegar minni skipum. Ísing getur snögglega myndast, bæði vegna sjávarlöðurs en einnig vegna úrkomu. Mörg skipbrot hafa orðið vegna mikillrar ísmyndunar á skipum. Það er því mikilvægt fyrir Veðurstofuna að fá upplýsingar um þannig veðurfyrirbrigði þannig að hægt sé að grípa til viðeigandi ráðstafana.

Með hjálp gervihnattamynda var mögulegt að fylgjast með þróun óveðursins sem skall á Vestur-Noregi nýársdaginn 1992. Lægðarmiðjan sést sem miðjan í skýjastróknum. Hitastigið var 20°C heitara sunnan skilanna en norðan. Heitu skýin sjást sem gul svæði á myndinni.

Í þessu stórviðri mældist vindhraðinn mest 190 km/klst. Hann var ómælanlegur þar sem vinmælar norsku Veðurstofunnar DNMI mæla mest 170 km/klst. Gervihnattamyndin af stórviðrinu er samsett úr rásum 5, 4 og 3. Innrauðar hitamyndir NOAA-AVHRR nýtast til að rannsaka skýjamyndanir á næturnar, þar sem hinir köldu skýjatoppar aðgreinast auðveldlega frá yfirborði jarðar. Þessar myndir eru einnig notaðar til að reikna út hitastig skýjanna, en það er mikilvægur þáttur við flokkun skýja.

Upplýsingar frá gervihnöttum gefa veðurfræðingum einnig möguleika á að ákvarða snjó- og ísmörk á landi og á legi, auk yfirborðshita sjávar. Þetta eru upplýsingar sem mynda hluta af því gagnasafni sem notað er við módelútreikninga á veðurhorfum.

Send a tip to a friend Print-friendly format
Norwegian Meteorological Institute.
Information about the weather and the forcast in different part of the world.
Europe weather with forcasts, surface pressure, temperature, satellite image (Meteosat).
Weathermap for Europe with isoterms, isobars and weather symbols
Weathermaps for Europe with isobars and fronts. New updated map every day.
Weathermaps of Europe, updated animation every day. Norwegian Meteorological Institute (DNMI).
Tilheyrandi tenglar:
  • DNMI
  • Find the weather and the forcast
  • Weather Forecast for Europe
  • Weathermap with isoterms, isobars and symbols
  • Weathermaps
  • Weathermaps
     
  • Þetta þema inniheldur einnig:
    Veðuraðstæður í Noregi
    Vestanvindabeltið og úrkomuskil
    Meginskilin, þar sem hin miklu lægðakerfi myndast.
    Gervihnattamyndir frá NOAA-gervihnettinum
    Gervihnattamyndir frá METEOSAT-gervihnettinum

     
    Sarepta er vefur á vegum Norsku geimmiðstöðvarinnar, www.spacecentre.no
    og Landsmiðstöðvar um fræðslu sem tengist geimnum, www.narom.no.
    Skrifa til Sarepta