Um Sarepta
Leita
Norsk
English
Sólin
Reikistjarnan Mars
Staðreyndir um Mars
Geimför til Mars
Geimkönnuðurinn Mars Express
Jörðin séð frá gervihnetti
Gervihnattamyndir
Tenglasafn
Orðalisti
Forrit
Ýmis verkefni
Ráðstefna
Reikistjarnan Mars
Reikistjörnurnar 9 í sólkerfinu okkar hreyfast kringum sólu eftir næstum hringlaga brautum. Reikistjörnurnar 4 sem eru næst sólinni hafa fast yfirborð úr bergi. Næstu fjórar eru stórar gas-reikistjörnur en sú ysta hefur fast yfirborð.
Mars er yst bergreikistjarnanna fjögurra sem liggja næst sólu. Hún kallast Rauða reikistjarnan af því að hluti yfirborðs hennar er þakið rauðleitum sandi og ryki.
Frá jörðu er hægt að greina grófa drætti í yfirborðinu. Geimfar hefur verið sent til Mars til að leita að ummerkjum eftir líf. Hversvegna höfum við svo mikinn áhuga á reikistjörnunni Mars?
Staðreyndir um Mars
Staðreyndir um Mars Mars er sú reikistjarna sem er næst jörðu. Hún líkist á margan hátt jörðinni. Þar sem hún bæði sést auðveldlega og lofthjúpur hennar er bæði lítill og gagnsær, vitum við meira um Mars en nokkra aðra reikistjörnu.
Geimför til Mars
Geimför til Mars Ómönnuð geimför hafa um borð ógrynni mælitækja. Þeim er ýmist ætlað að fljúga framhjá, ferðast umhverfis eða lenda á þeim fyrirbrigðum sem finnast í geimnum. Þau senda síðan upplýsingar til baka til jarðarinnar.
Geimkönnuðurinn Mars Express
Geimkönnuðurinn Mars Express Hinn 2. júní 2003 var evrópska geimfarinu Mars Express skotið á loft. Áætlað var að Beagle 2, lendingarkönnuðurinn, myndi lenda á reikistjörnunni Mars á jóladag 2003. Þetta var fyrsta evrópska geimferðin til Mars.
Sarepta er vefur á vegum Norsku geimmiðstöðvarinnar, www.spacecentre.no
og Landsmiðstöðvar um fræðslu sem tengist geimnum, www.narom.no.
Skrifa til Sarepta