Um Sarepta
Leita
Norsk
English
Sólin
Reikistjarnan Mars
Jörðin séð frá gervihnetti
Veðuraðstæður í Noregi
Stormur á Vesturströnd Noregs nóvember 1998
Þörungar í hafinu
Olíumengun og skipaferðir - gervihnettir geta haft eftirlit
Þynnist ósonlagið?
Hvernig er fylgst með ósonlaginu?

Áhrif flugvallarbygginga í Gardemoen við Oslo á elgdýr
Eftirlit með breytingum á óshólma í norðurhluta stöðuvatnsins Øyern
Gervihnattamyndir
Tenglasafn
Orðalisti
Forrit
Ýmis verkefni
Ráðstefna
Þynnist ósonlagið?
Hvernig er fylgst með ósonlaginu?

Í gatinu á ósonlaginu yfir Suðurheimskautslandinu, Antarktis, getur heildar-ósonmagnið í verstu tilfellum farið niður í 90-100 Dobson-einingar. Þetta þýðir 70% minnkun miðað við það ósonmagn sem var vanalega til staðar áður en gatið myndaðist.
Yfir Norðurheimskautinu kemur það fyrir að heildar-ósonmagnið fer undir 200 Dobson-einingar. Siðan 1979 hefur þykkt ósonlagið minnkað að meðaltali um 0,4% á ári.
Er ósonlagið að þynnast?
Í ágúst 2000 sýndu gervihnattamælingar að ósonlagið yfir Suðurheimskautinu, Antarktíku, var 30 prósent þynnra en viðmið áranna frá 1964 til 1976. Gildið var tvöfal hærra en tveim vikum fyrr. Alþjóða Veðurstofan (WMO) tilkynnti að þessar niðurstöður væru óvanalegar og hélt því fram að ósonlagið yfir Antarktíku hefði þynnst til muna.
Hvað er óson? Hvernig verður óson til?
Þegar árið 1879 kom franskur vísindamaður með þá tillögu að í andrúmsloftinu væri gas sem gleypti útfjólubláa (UV) geisla. Árið 1912 voru gerðar rannsóknir á því hvernig óson færi að því að gleypa geisla. Niðurstöðunum var líkt við því hvernig andrúmsloftið gleypir í sig sólarljós og því slegið föstu að það hlyti að vera óson í andrúmsloftinu.
Dreifing ósons umhverfis jörðu. Hvernig er óson mælt?
Dreifing ósons umhverfis jörðu er mismunandi þegar ferðast er frá norðri til suðurs. Það er einnig breytilegt þegar sömu breiddargráðu er fylgt umhverfis jörðina. Í Osló er lægra gildi en á tilsvarandi breiddargráðu í Alaska og í Síberíu.
Mælingar frá jörðu
Óson er mælt með Dobson-mælum á um 100 stöðum víðs vegar um jörðina. Í Noregi eru þrír þannig mælar. Einn þeirra er í Norðurljósa-rannsóknarstöðinni í Tromsø. Mælitækið er í góðu ástandi og gefur öruggar mælingar. Það er búið nútíma rafeindatækni en ljósfræðilegir hlutar þess eru þeir sömu og voru upphaflega í tækinu þegar það var framleitt 1934.
Háloftaathuganir úr loftbelgjum
Á Suðurpólnum eru framkvæmdar mælingar á ósonlaginu með hjálp mælitækja sem send eru upp með loftbelg. Með því að fylgjast með loftbelgnum þegar hann stígur má rannsaka hvernig óson-magnið breytist með hæð. Loftbelgir ná oft um 30 km hæð áður en þeir springa og falla til jarðar í lítilli fallhlíf.
Gervihnattamælingar
Þróaðar hafa verið áreiðanlegar aðferðir við að mæla óson í heiðhvolfinu frá gervihnöttum. Óson hefur verið mælt frá gervihnöttum síðan 1978.
Gatið í ósonlaginu yfir Suðurpólnum
Gatið í ósonlaginu hefur myndast vegna þess að við mennirnir höfum í áraraðir notað efni sem kallast klórflúorkolefni og halógenóalkanar. Það sem er sameiginlegt þessum efnum er að þau innihalda klór og bróm en þau geta brotið niður óson.
Hvað efni brjóta niður ósonlagið?
Í dag eru margir uppteknir af ósonlaginu. Ástæðan er sú að gastegundir sem mennirnir sleppa út í andrúmsloftið geta valdið niðurbroti á ósoni. Það getur síðan valdið því að stærri hluti útfjólublárra geisla sólar nái niður til yfirborðs jarðar. Útfjólubláir geislar eru einungis u.þ.b. 2% af heildarorku sólargeislanna.
Ósoneyðing og afleiðingar þess
Þynning ósonlagsins hefur bæði skaðleg áhrif á allt líf á landi og einnig í efstu metrum sjávarins. Hinir skaðlegu útfjólubláu geislar eru í dag um 20 prósent meiri en upp úr 1980.
Hvað er gert til að vernda ósonlagið? Hvernig mun því farnast í framtíðinni?
Þegar gatið í ósonlaginu uppgötvaðist 1985 og það lá fyrir að ástæðan væri KFK og halógenóalkanar brást alþjóða-samfélagið hratt við. Strax í lok 1985 var undirritaður Vínarsáttmáli um verndun ósonlagsins.
Sarepta er vefur á vegum Norsku geimmiðstöðvarinnar, www.spacecentre.no
og Landsmiðstöðvar um fræðslu sem tengist geimnum, www.narom.no.
Skrifa til Sarepta