Um Sarepta
Leita
Norsk
English
Sólin
Reikistjarnan Mars
Jörðin séð frá gervihnetti
Veðuraðstæður í Noregi
Stormur á Vesturströnd Noregs nóvember 1998
Þörungar í hafinu
Olíumengun og skipaferðir - gervihnettir geta haft eftirlit
Þynnist ósonlagið?
Hvernig er fylgst með ósonlaginu?

Áhrif flugvallarbygginga í Gardemoen við Oslo á elgdýr
Eftirlit með breytingum á óshólma í norðurhluta stöðuvatnsins Øyern
Gervihnattamyndir
Tenglasafn
Orðalisti
Forrit
Ýmis verkefni
Ráðstefna
Olíumengun og skipaferðir - gervihnettir geta haft eftirlit
Ólögleg olíulosun í heimshöfin er áætluð 3 milljónir tonna á ári. Þar að auki valda óhöpp við borpalla og lekar sem verða á olíuleiðslum sem liggja milli olíuvinnslusvæða í sjó og meginlanda einnig olíumengun.
Eftirlit með gervihnöttum
70% af yfirborði jarðarinnar er sjór. Þar af leiðandi er það ómögulegt að vaka yfir öllu hafsvæði jarðarinnar á venjubundinn hátt með baujum, skipum eða flugvélum. Flatarmál hafsvæðanna eru bæði of stór en þar að auki valda öldur, ský og birtuskilyrði vandamálum.
Ratsjár-gervihnettir virka vel
Norðmenn eru mjög framarlega í þróun eftirlitsaðferða sem nýta gervihnetti. Í því sambandi er mikil áhersla lögð á gervihnetti sem nýta ratsjá til að fá fram mynd (SAR-tæki).
Lítils háttar olíumengun getur valdið miklum skaða
Það þarf ekki mikla olíu til að valda miklum skaða. Olían myndar þunnt lag ofan á yfirborði sjávar. Lagið getur rekið langar leiðir, brotnað niður eða ef vindurinn er nægilega sterkur getur olían blandast vatnssameindum.
Vöktun skipaferða
Komið hefur í ljós að ratsjár-gervihnettirnir nýtast vel við vöktun skipaferða, sérstaklega þar sem ölduhæðin er ekki of mikil.
Sarepta er vefur á vegum Norsku geimmiðstöðvarinnar, www.spacecentre.no
og Landsmiðstöðvar um fræðslu sem tengist geimnum, www.narom.no.
Skrifa til Sarepta